You are here: Home Members thorjoh Kveðjuávarp Bob læknis
Document Actions

Kveðjuávarp Bob læknis

“Mínir góðu vinir í AA og úr AA, mér finnst sem ég væri ákaflega kærulaus ef ég notaði ekki þetta tækifæri til að bjóða ykkur velkomin hingað til Cleveland, og ekki bara á þennan fund heldur á alla þá sem þegar hafa verið haldnir.  Ég vona af heilum hug að viðvera svo mikils fjölda fólks og orðin sem þið hafið hlýtt á reynist ykkur sem innblástur – og ekki aðeins ykkur, því þið megið miðla áfram þessum innblæstri til drengjanna og stúlknanna sem heima sitja og voru ekki svo lánsöm að komast hingað. Með öðrum orðum, við vonum að heimsókn ykkar hingað hafi bæði verið ánægjuleg og arðbær.

 

Ég fæ gleðihroll yfir að horfa á hafsjóinn af öllum þessum andlitum sem og þeirri tilfinningu að jafnvel hafi einhver lítill hlutur sem ég lagði til fyrir mörgum árum átt örlítinn þátt í að gera þennan fund mögulegan. Einnig fæ ég gleðihroll þegar ég hugsa út í að öll höfum við átt við sama vandamál að glíma. Við gerðum öll sömu hlutina. Við fengum öll sömu niðurstöður í samræmi við ákafa, eldmóð og áfram-halds-gjörðir okkar. Ef þið gætuð fyrirgefið mér fyrir persónulegt innskot á þessari stundu, langar mig að segja ykkur að ég hef verið rúmfastur fimm af síðastliðnum sjö mánuðum, og styrkur minn hefur ekki snúið aftur, eins og ég hefði viljað, því verða nauðsynlegar athugasemdir mínar mjög stuttar.

 

Það eru tveir eða þrír hlutir sem komu upp í hug mér sem nú væri viðeigandi að leggja ofurlitla áherslu á. Einn er einfaldleiki prógrammsins okkar. Við skulum ekki týna honum með Freaudískum geðflækjum og í hlutum sem eru áhugaverðir fyrir vísindahyggjuna, en hafa ákaflega lítið að gera með hina raunverulegu vinnu okkar í AA. Sporin okkar tólf, í sinni allra einföldustu mynd, leitast við að útskýra sig með orðunum “kærleikur” og “þjónusta”. Við skiljum öll hvað kærleikur er og við skiljum öll hvað þjónusta er. Höfum því þetta tvennt í huga.

 

Við skulum einnig muna að passa upp á hinn villta félaga okkar, tunguna, og ef við neyðumst til að nota hana, skulum við nota hana með  vinsemd, nærgætni og umburðarlyndi.

 

Og eitt í viðbót: Ekkert okkar væri hér ef einhver manneskja hefði ekki gefið sér tíma til að útskýra hlutina fyrir okkur, að klappa okkur örlítið á bakið, að taka okkur með sér á fund eða tvo, að gera fjölda hlýlegra  og hugulsamra hluta fyrir okkar.  Við skulum því aldrei komast á það stig sjálfumglaðrar sjálfsánægju að við séum ekki fús til að bera áfram, eða reyna að bera áfram, til meðbræðra okkar sem eiga minni lukku að stýra, hjálpina sem hefur reynst okkur svo heillavænleg.”

 

Flutt á:

Fyrsta alþjóðlega AA þinginu (AA’s First International Convention)

Cleveland, Ohio

30. Julí, 1950

 

Bob læknir varð að lúta í lægra haldi fyrir krabbameini þann 16. nóvember, 1950.


Powered by Plone CMS, the Open Source Content Management System

This site conforms to the following standards:

Personal tools