You are here: Home Efni Lögmál Gresham's og Alcoholics Anonymous
Document Actions

Lögmál Gresham's og Alcoholics Anonymous

HVERNIG VILTU HAFA
KAFFIÐ ÞITT?
STERKT? - MIÐLUNGS? - VEIKT?


LÖGMÁL GRESHAM’S--SEM SEGIR AÐ FALSKIR PENINGAR EYÐILEGGI LÖGLEGA PENINGA--HEFUR VERIÐ STARFANDI Í LÍFI ALCOHOLICS ANONY-MOUS. VEIKT AA HEFUR TILHNEIGINGU TIL AÐ ÚTRÝMA STERKU AA.

Grein þessi birtist upphaflega í júlý, 1976 hefti af “24 Magazine,” en höfundur er óþekktur. Tímaritið gaf leyfi til endurprentunar.
Við höfum sett þetta efni á “þarf að lesa” efnis listann okkar, sérstaklega fyrir hvern þann sem hefur huga á því hversvegna AA er ekki eins áhrifaríkt nú eins og það var á fyrri árum. Er greinin sérstaklega fyrir þá einstaklinga sem upplifa “flatan bata,” sveiflóttann bata, þunglyndi, sjálfsmorðs hugsanir, afturhvarf til neyslu, eða endurtekin neyslutilfelli.

ER ÞETTA EITTHVAÐ SEM MÉR KEMUR VIÐ?
ÞARF ÉG AÐ SPYRJA MIG HVORT ÉG SÉ AÐ FLYTJA BOÐSKAPINN RÉTT?
Það eru þrjár leiðir til að vinna AA frógrammið. (1) Hin sterka leið, upphaflega leiðin, sem reynst hefur kröftug og traust í virkni sinni í yfir sextíu og fimm ár. (2) Meðal leiðin - ekki svo sterk, ekki svo örugg, ekki svo viss, ekki svo góð, en virkar samt eitthvað. Og (3) síðan veika leiðin, sem reynist í raun ekki vera nein leið heldur orðrétt "villutrú", fölsk kennsla, beygluð afbökun á því sem stofnendur Alcoholics Anonymous settu skýrt fram að væri prógrammið.
Þegar ég var orðin ellefu ára meðlimur í Alcoholics Anonymous, var ég enn uppnumin af samblandi einfaldleika, gagnsemi og grundvallar hugsjón þess sem byggt eru inní Tólf Spora bata kerfi AA-samtakanna.
Þessi djarfa vinnu-teikning til breytinga á lífi alkóhólistans var gerð 1939 af fyrrverandi vonlausum drykkjurút sem þjónaði sem svaramaður fyrir óþekktan, ósannaðan félagskap 100 endurhæfðra vandræða drykkjumanna, sem margir hverjir voru enn tiltölulega á fyrstu þrepunum í bataþróun frá alkahól ánetjuninni.
Þrátt fyrir víðfeðmi innihalds Sporanna eru þau svo einfaldlega orðuð og svo vel útskýrð í fimmta kaflanum og eftirá fylgjandi efni í AA-bókinni “Alcoholics Anonymous”, sem á Ensku er kölluð “The Big Book,” að hver sem er getur framkvæmt þau. Það er einmitt í því sem liggur mesta snilli þeirra. Það eru engar kröfur um fyrri hreinleika í lífinu eða æðri mennta stig. Einungis er spurt um vilja til að viðurkenna persónulegan ósigur og einlægan ásetning til að breytast.
Tólf Sporin eru í skarpri mótsögn við hina veraldlegu sálfræði grundvallarreglu að þar sem afkastagetan er á lágu stigi þurfi að gera litlar kröfur og væntingar um afköst svo að hægt sé að öðlast einhvern jákvæðan árangur í lífinu. Með slíkum viðhorfum hefði viðleitni hinni fyrstu AA félaga tekið mið af því að koma saman prógrammi þar sem ekki væri farið framá meira en að drekka ekki alkóhól og hverfa aftur til lífsins eins og það var áður enn alkóhól ánetjunin fór að gera vart við sig, eða lífi svokallaðra hversdags manna og kvenna í heiminum. Markmið hinna ný-afeitruðu fyllirafta varð hinsvegar að verða að mönnum og konum er voru algjörlega á valdi Guðs.
Höfundar AA-bókarinnar vissu að þessi rótæka bataáætlun kæmi til með að styggja marga nýliðanna sem þeir voru að reyna að ná til með skilaboðum sínum og þeir gripu til tveggja ráða til að gera meðalið sykursætt. Fyrst komu þeir með eftirfarandi afneytunnar yfirlýsingu strax eftir birtingu Tólf Sporanna í kafla fimm: “Mörgum okkar varð að orði,… Þetta tekst mér aldrei. Láttu ekki hugfallast. Engu okkar hefur tekist að fara eftir þessum frumatriðum út í ystu æsar. Við erum ekki dýrlingar. Aðalatriðið er, að við séum fús til að þroskast eftir andlegum leiðum. Frumskilyrðin, sem við höfum skrifað hjá okkur, eru vörður við þroskaleiðina. Við stefnum að andlegri framför frekar en andlegri full¬komnun."
Þessi stutta grein var snilldar innsæi, sérstaklega setningin, “Við erum ekki dýrlingar.” Hún hefur auðveldað þúsundum nýrra, hálf-sannfærðra AA-félaga (mig þar á meðal) að komast framhjá þeirri staðreynd að við stefnum--undir leiðsögn Sporanna--í hina fullkomlega óþekktu átt til andlegrar fullkomnunar.
Flest okkar byrjuðum að iðka Sporin án þess að vera fyllilega meðvituð um hin raunverulega mátt þeirra. Reynslan sýndi okkur fljótlega að þau virkuðu. Þau gerðu okkur ódrukkin og héldu okkur ódrukknum. Frá hinu hreina hagnýtni-sjónarhorni okkar þá var það þetta sem skipti öllu máli. Við vorum ánægð með að njóta edrúmennsku okkar og láta alla umræðu um það hvers vegna Sporin virkuðu, ei-alkahól ánetjuðum kennimönnum eftir - lífi þeirra var ekki ógnað ef þeir færu að rugla eitthvað með ástæðurnar og kæmust að einhverri rangri niðurstöðu.
AA-stofnendurnir gerðu einnig nokkuð fleira til að koma í veg fyrir að hin andlega reisn og máttur Tólf Sporanna fældi ekki al-græna nýliða. Þeir settu Sporin fram sem uppástungur fremur en skipanir. Setningin sem kynnir Sporin í fimmta kafla AA-bókarinnar segir, “Hér eru sporin sem við stigum, og í þeim felast tillögur okkar um leiðina til bata.” Þessi hugmynd hafði gífurleg áhrif vítt og breytt innann AA-hreyfingarinnar allt frá þeim tíma er "The Big Book" kom fyrst út. Drykkjufólk hatar að lát skipa sér eitthvað fyrir. Frelsið til að taka Sporin með sínu eigin hraða og sinni eigin aðferð óx fljótt í það að verða AA-félögunum mjög kær.
Áður en við rannsökum nánar afleiðingar þessa kæruleysis í nálguninni við Sporin, þá er eitt furðu fyrirbrigði sem er þess virða að það sé skoðaða nánar. AA var til í full fjögur ár áður en Sporin voru sett fram í sínu endanlegu skriflegu formi. Á meðan á þessum tíma stóð var prógramm í gangi og það var að þurrka upp alkóhólista. Það var samsett úr tveimur hlutum: Sex-spora munn-fram-af-munni prógramms, og hinna Fjögurra Absalúta--absalút heiðarleiki, absalút hreinleiki, absalút óeigingirni, og absalút kærleikur--sem fengið hafði verið frá Oxford Reglunum og Mótmælenda Kristni-hreyfingunni sem AA-samtökin fæddust upp-úr. Sporin Sex í munn-fram-af-munni prógramminu frá hinum fyrstu frum-árum Alcoholics Anonymous, eins og þau birtast í "Alcoholics Anonymous Comes of Age" bókinni, eru:
1. Við viðurkenndum að við værum vanmáttug gagnvart alkahóli.
2. Við gerðum siðferðislega upptalningu á göllum okkar og syndum.
3. Við játuðum eða deildum göllum okkar með annarri persónu í trausti.
4. Við gerðum skaðabætur til allra þeirra er við höfðum skaðað með drykkju okkar.
5. Við reyndum að hjálpa öðrum alkóhólistum án hugsunar um laun, peninga eða upphafningar.
6. Við báðum til þess Guðs sem við töldum gefa mátt til farmkvæmdar upptalningarinnar.
Á þessum frumdögum AA var ekki talað um uppástungur. Þessir grundvallar þættir prógrammsins voru séðir af öllum eldri meðlimunum sem leiðbeiningar, sem lífsnauðsynleg frumskilyrði og voru rétt nýliðunum sem slík.
Þegar Bill fyrst formaði Tólf Sporin, setti hann þau einnig saman sem leiðbeiningar, ekki sem uppástungur. Þegar hugmyndin um að kynna Sporin sem uppástungur kom fyrst fram, var Bill lengi einarður á móti því. Að lokum--og það mjög treglega--samþykkti hann. Í bókinni "Alcoholics Anonymous Comes of Age" segir hann frá því hvernig þessi tilslökun gerði ótöldum fjölda AA-félaga að nálgast samtökin. Félögum sem annars hefðu fælst frá AA og aftur til virks alkóhólhisma.
Eigi að síður var Bill maður sem hafði varkárni og fyrirhyggju sem einkunnarorð og gekk úr götu sinni til að beygja framhjá niðurbrjótandi árekstrum. Maður kemst ekki hjá því að brjóta heilann um það hvort tilfinning hans viðkomandi ákvörðuninni um að kynna Tólf Sporin í formi tillaga væri ekki eitthvað meira tvíræð en hann vildi viðurkenna opinberlega eftir að málamiðluninni hafði verið náð. Því verður ekki neitað að setningarnar í fimmta kaflanum í "The Big Book", sem kynna Tólf Sporin, eru fullar af framsetningum sem eru fullkomlega viðeigandi sem formáli að leiðbeiningum, en hæfa ekki eins vel sem kynning á safni uppástungna. Hér er upphaf fimmta kaflans með lykil orðum og orðasamböndum undirstrikuðum:
"Sjaldan höfum við vitað til þess að nokkur villtist af leið, sem einarðlega fetaði í spor okkar. Þeir, sem ekki fá bata, eru fólk sem getur ekki, eða vill ekki gefa sig algerlega á vald þessari einföldu stefnu, venjulega karlar og konur, sem eðlis síns vegna er ókleift að vera heiðarleg gagnvart sjálfum sér. Slíkt ógæfufólk er til. Því verður ekki um kennt. Það virðist vera fætt svona. Það er haldið eðlislægu getuleysi til að skilja og þroska með sér lifnaðarhætti, sem krefjast strangs heiðarleika. Líkur þess fyrir bata eru undir meðallagi. Einnig er til fólk sem þjáist af geðrænum truflunum alvarlegs eðlis, en margir úr þessum hóp geta náð sér, ef þeir hafa eiginleika til að vera heiðarlegir. Sögur okkar sýna í stórum dráttum hvernig við vorum, hvað gerðist, og hvernig við erum núna. Sért þú viss um að þú viljir eiga hlutdeild í því sem okkur hefur hlotnast og ert reiðubúinn til að ganga eins langt og þarf til þess - þá ertu reiðubúinn að stíga ákveðin spor.

"Okkur hraus hugur við sumum þeirra. Við héldum að við gætum fundið auðveldari og þægilegri leið. En það gátum í við ekki. Við biðjum þig af dýpstu og einlægustu alvöru að ganga óhræddur ítarlega til verks strax frá byrjun. Sum okkar hafa reynt að halda í gamlar hugmyndir með þeim afleiðingum að árangurinn varð enginn, þar til við slepptum þeim alveg.

"Minnstu þess að það er áfengi sem við erum að glíma við -- og það er lævís, óútreiknanlegur og voldugur andstæðingur. Hjálparlaust ráðum við ekki við það. En einn er það, sem allt vald er gefið, og það er Guð. Megir þú finna hann núna!

"Allt hálf kák reyndist okkur gagnslaust. Við stóðum á krossgötum. Við fólum okkur skilyrðislaust vernd og umhyggju hans. Hér eru sporin sem við stigum…"
Sé gengið útfrá því að Bill hafi á endanum verið full sáttur með málamiðlunina, hafa hinar upphaflegu efasemdir hans með tímanum komið í ljós sem spádómur. Á þeim tíma, samt sem áður, var ekkert sem benti til þess að þessi eftirgefni við--einungis tillögur um leiðina til bata sem einu nálgunina--væri nokkuð annað en blessun fyrir samtökin.
Árin 1938 og 1939 þegar "The Big Book" var í skrifum voru 100 meðlimir í samtökunum. Þegar 1945 gekk í garð voru virkir meðlimir AA komnir uppí 13,000. Aðal ástæðan fyrir þessum sprengingar vexti var að prógrammið--Sporin--vor sigrandi uppskrift; þau virkuðu, og það var mikil þörf fyrir þau þarna úti meðal fólksins. Ameríka var blaut og ungaði út miklum fjölda alkóhólista.
Afar jákvæðar blaða-umsagnir með AA sögunni voru einnig meiriháttar þáttur í hinum tilkomumikla vaxtar ferli. Röð af áhugaverðum greinum um AA birtust haustið 1939 í Cleveland "Plain Dealer." Þessar greinar framkölluðu flóð af nýjum AA félögum á Cleveland svæðinu. Þessi skyndilega útþensla var hin fyrsta áþreifanlega sönnun þess að AA hefði getuna til að vaxa uppí hreyfingu meiriháttar umfangs.
Röð atburðanna á þessu tímabili er mikilvæg. "The Big Book" kom úr prenti í apríl 1939, og "einungis tillögur um leiðina til bata" nálguninni við Sporin var nú dreift í fyrsta skiptið. Nokkrum mánuðum síðar er "Plain Dealer" greinin birt og Cleveland AA-samtökin upplifðu sig í tengslum við nýja möguleika í áður óþekktu magni. Skyndilega varð það aðlaðandi hugmynd--á máta sem það hafði ekki gert áður þegar samtökin voru smærri og nánar tengd--að slaka eitthvað á hugmyndinni um að allar grundvallar reglurnar skyldu vera iðkaðar alltaf af öllum félögunum. Meiri og meir áhersla fór að verða lögð á þá staðreynd að Sporin ætti að skoða einungis sem uppástungur. Á þessum tíma og með þessum kringumstæðum og hætti, kom til framkvæmda "kaffiteríu-stællinn", taktu-það-sem-þér-líkar-og-skyldu-restina-eftir, nálgunin við Tólf Sporin.
Þetta virtist virka. Það kom í ljós að margir nýliðar gátu orðið ódrukknir og verið ódrukknir án nokkurs eins og fullrar og öflugrar iðkunar þess prógramms sem hafði verið séð sem líf-og-dauða nauðsyn á fyrstu árum samtakanna. Það kom fram að verulegur fjöldi alkóhólista fór að sýna framá að þeir gætu haldið sig frá búsinu með því einu að viðurkenna vanmátt sinn, einhverri vinnu með öðrum alkóhólistum og reglulegum heimsóknum á AA fundi.
Þetta segir ekki að allir AA-félagarnir hafi farið að taka þessa ofur-kærulausu nálgun við Tólf Sporin. Mjög margir héldu áfram að kjósa hina upphaflegu, fulls-prógramms nálgun. Með þessu fóru í fyrsta skiptið að koma fram virkni annarra--síður strangra--aðferða, og varð þróunin sú að þær urðu meira og meira áberandi eftir því sem tíminn leið.
Í fyrstu virtist þetta sem óblandin blessun. Eftir allt saman þá var þeim sem óskuðu í virkni að iðka öll Tólf Sporin frjálst--sem áður--að gera það. Þeir sem kusu að vinna með sum, eða bara par Sporanna, héldu sér einnig ódrukknum. Og AA hélt áfram að draga að sér fleiri og fleiri félaga og meiri og meiri gagnvirka viðurkenningu. Árið 1941, var grein Jack Alexander's um Alcoholics Anonymous birt í “Saturday Evening Post.” AA-meðlimir vor þá um 2,000. Á næstu nýju mánuðum stökk-jókst meðlimafjöldinn um 400%.
Um þetta leyti fór að verða mögulegt að greina á milli þriggja mismunandi aðferða við vinnslu AA prófgramsins, sem gjarnan voru skilgreindir sem sterkt-kaffi, meðal-kaffi, og veikt-kaffi nálganir við AA-prógrammið. Sterk-AA-skilaboð var hin upprunalegi, ó-útþynnti, skammtur af andlegum grundvallar reglum. Sterk-AA-skilaboð fólust í því að taka öllum Tólf Sporunum - og héldu áfram taka þau. Þau stoppuðu ekki við viðurkenningu vanmáttarins yfir alkahóli, en héldu strax áfram til að láta viljann og lífið lúta handleiðslu Guðs. Sterkir-AA-þátttakenndur fóru að iðka strangan heiðarleika í öllum málum. Í stuttu máli, þá hófust þeir handa við að gera siðferðisleg reikniskil, viðurkenna allar sínar röngu gjörðir við að minnsta kosti einn annan einstakling, framkvæma jákvæðar og ákveðnar skaðabætur, þar sem þess var kostur, fyrir hinar röngu gjörðir, haldandi áfram að gera reikningskil, viðurkennandi galla sína og gerandi leiðréttingar á reglulegum grundvelli, biðjandi og hugleiðandi daglega, farandi á tvo eða fleiðri AA fundi viku lega og voru virkir í Tólfta Sporinu, færandi boðskap AA til þeirra sem enn voru í vandræðum.
Miðlungs-AA-þáttakandi byrjaði venjulega með hvell, svipað og hin sterki-AA-þáttakandi, nema að þeir fóru að hökta áfram eða fresta framkvæmdum eitthvað við þá hluta prófgramsins sem þeim stóð stuggur af eða geðjaðist ekki--mögulega Guðs Sporin, mögulega reikningsskila Sporin, í samræmi við þeirra persónulegu veiku lund eða geðþótta. Eftir að hafa síðan verið ódrukknir einhvern tíma, fóru miðlungs-AA-þátttakendurnir að slaka á og koma sér vel fyrir við að iðka prógrammið, eitthvað á þessa leið: Einn AA fundur í viku; einstaka Tólftaspors vinna (látandi meira og meira hinum "nýju félögum" eftir með tímanum); einhver vinna við Sporin (en ekki eins og í upphafi); minni og minni reikningskil (eftir því sem þeir urðu meira og meira "virtir" af samborgurunum); einhver bæn og hugleiðsla var áfram iðkuð en ekki á daglegum grundvelli lengur (hefi ekki nægan tíma vegna vinnuálags, félagslegra verkefna og vegna annarra slíkra byrða sem komu með afturhvarfi til eðlilegs lífs í heimi vinnu vikunnar).
Hinir veiku-AA-þátttakendur voru svo blandaður hópur. Það sem þeir áttu allir sameiginlegt var að þeir létu stóran hluta prógrammsins fullkomlega og varanlega fara fyrir ofan garð og neðan strax frá byrjun - stundum Guðs Sporin, stundum reikningskila Sporin, oft þó hvoru tveggja. Hinir veiku-AA-þátttakendur notuðu gjarnan hugtök eins og , "Allt sem þú þarft að gera til að vera ódrukkin er að fara á fundi og taka ekki fyrsta sopann." Flestir hinna veiku-AA-þátttakenda náðu árangri í að vera ódrukknir og voru fremur stöðugir funda-sækjarra. Þar sem þeir voru lítið að iðka grundvöllinn, var edrúmennska þeirra og lífsafkoma--meira en hinna sterku- og miðlungs-AA-þátttakenda--háð stöðugum samskiptum við fólkið í AA.
Staðreyndin er sú að einungis hinir sterku-AA-þátttakendur voru að iðka profgrammið eins og það hafði verið sett fram í "The Big Book". Sé það gefið að miðlungs- og veikir-AA-þátttakendur höfðu öll réttindi sem AA-félagar til að iðka grundvallar reglurnar á hvern þann máta sem þeim þóknaðist (að meðtöldu því að iðka varal nokkuð), þar sem Sporin voru "einungis tillögur" - þá var sá máti sem fyrstu félagarnir höfðu iðkað og sem var skráður í AA-bókinni, leið hins sterka-AA-þáttakenda.
Miðlungs nálgun við prógrammið hefur verið--og er enn--raunverulega uppbyggjandi þáttur í bataáætlun AA, þar sem það gagnast sem tímabundin áfangi fyrir trega byrjendur. Miðlungs-AA-kaffi er möguleiki sem gerir mörgum þeirra sem ekki eru nægilega sterkir í byrjun fyrir hið sterka-AA-kaffi, kleyft að fóta sig í Alcoholics Anonymous samtökunum til að byrja með.
Hinsvegar getur miðlungs-AA-þátttaka orðið, og verður oft að, gildru. Þetta er ekki staður til þess að setjast að varanlega fyrir AA-félaga. Einstaklingar sem halda sig of lengi við miðlungs-AA-þátttöku, getur hent það að missa af tækifærinu þar sem þeir fá hvatningu til að þroskast upp í sterka-AA-þátttöku og enda uppi með að síga niður í veika-AA-þátttöku.
Veik-AA-þátttaka hefur ekki hina bætandi eiginleika miðlungs-AA-þátttöku. Það er augljóslega í andstöðu við prógrammið eins og það er sett fram í "The Big Book." Það er grundað í flatneskju og á ó-umræddri neitun á því að vinna með ómissandi grundvallar lögmál endurhæfingarinnar. Veik-AA-þátttaka leiðir til upp-gjafar, og halda þeir sem hana kjósa áfram í uppgjöf gagnvart flestum hinna Tólf Sporanna. Þeir útvatna prógrammið þar til það er ekki lengur neitt prógramm í þeim skilningi sem fyrst AA-félagarnir skyldu það. Yfirgrips meira, nákvæmara og betur lýsandi hugtak fyrir "veika-AA-þátttöku" er "flótta-útvatnað-athafnaleysis AA", eða FÚA-AA í styttingunni. Í gegnum árin hefur ákveðin þróun átt sér stað í AA-samtökunum hvað við kemur vinsældum og viðurkenningu á STERKU og FÚA aðferðunum.
Á fyrstu árunum sem þeir birtust höfðu FÚA-AA-þátttakendurnir tilhneigingu til að verja og lofsyngja "sérleiðir" sínar, jafnvel með því að hnýta í hina sterku-AA-þátttakendurna fyrir að vera stífa og með ég-er-heilagri-en-þú framkomu. Hinir sterku-AA-þátttahendur aftur á móti hneigðust til að vera meira afslappaðir og umburðarlyndir, síður þrætugjarnir, síður í vörn. Eftir allt samann var þeirra leið öruggari þar sem hún byggðist á því að taka inn meyra af AA-lyfinu. Það var augljóslega hin upphaflega og ekta aðferð sem AA-bókin staðfesti með svo mikilli mælsku.
Þessi hliðar stefna viðhorfa átti eftir að hafa sérstök áhrif í hreyfingu sem þessari, þar sem hún stærði sig af góðhjarta tilhneigingu til að leyfa alls konar ómerkar skoðunnunm og iðkunum að tjá sig og þrífast. Hæstu raddirnar kom frá sérleiðunum og þær fóru með tímanum að hafa mestu áhrifin á nýliðanna. Flótta og útvatnað athafnaleysis AA fór að vera "inn" leiðin, leið framtíðarinnar: Sterk-AA-þátttaka fór að vera skoðuð--ekki almennt, en víð--sem eitthvað þungmelt og leiðinlegt og jafnvel eitthvað úrelt og gamaldags.
Með þessu hafði FÚA-AA á vissan máta sannað að Bill og fyrstu hundrað AA-félagarnir hefðu haft rangt fyrir sér. Í kynningu Tólf Sporanna, er yfirlýsingin: "Við héldum að við gætum fundið auðveldari og þægilegri leið. En það gátum í við ekki..." ótvíræð staðfesting þess að það væri nauðsynlegt að iðka öll Sporin. Hinsvegar tókst FÚA-AA-þátttakendunum sem iðkuðu nánast engin Spor, að vera ódrukknir. Þeir höfðu fundið auðveldari og þægilegri leið. Með mannlegt eðli eins og það er, þá var það óhjákvæmilegt að hin síður kröfuharða, miðlungs-til-veika aðferð, myndi vaxa að vinsældum, þar sem aftur vinsældir hinnar eldri og strangari leiðar myndi hnigna. Hver vill gera hlutina eftir erfiðu leiðinni þegar þess er ekki þörf? Hver vill aka bifreið með handskiptingu þegar samskonar bíll með sjálfskiptingu kostar 100.000 krónum minna?
AA hefur nú verið við lýði í meira en sextíu og sex ár. Eigi að síður er enn víðtækt umtal um þýðingu þess að vinna öll sporin og iðka strangan heiðaleika í öllum okkar málum. Staðreyndirnar eru hinsvegar þær að einungis fáir dýrmætir AA-félagar halda áfram að reyna af alvöru og stöðugt að FRAMKVÆMA þessa hluti á dags grundvelli--ekki bara rétt eftir fyrstu mánuði edrúmennsku þeirra í samtökunum.
Afturhvarf til lægra, meira "eðlilegs" stigs takmarka er dagskipunin. Þeir sem halda áfram að iðka sterka-AA-þátttöku þurfa að fara varlega þegar þeir tala um iðkun sína á AA fundum. Á mörgum stöðum er of mikið og of alvarlegt tal um Guð séð sem slæm framkoma. Hið sama gyldir um all tal viðkomandi játningum, skaðabóta gjörðum og ströngum heiðarleika--sérstaklega þar sem það hefur áhrif á svo erfiða og viðkvæma þætti lífsins eins og atvinnu umsóknir, skattaframtöl, viðskipta samninga og kynlífs samskipti.
En ef nú veik-AA-þátttaka virkar--ef það framkallar bata--hvað er þá athugavert við það? Mögulega er þetta tilfelli þar sem hálfkák reynist vera máttugra en bókstafs fylgnin. Hví skyldi þá einhver vera að með þá óþarfa fyrirhöfn að iðka sterka-AA-þátttöku? Fyrir því liggur ein mjög góð ástæða. Veik-AA-þátttaka framkallar mikið minna af grundvallar breytingum á lífi einstaklingsins en sterk-AA-þátttaka gerir. Í mörgum tilfellum eru hinar tiltölulega yfirborðskenndu breytingar ekki nægjanlegar til að rjúfa hegðunarmunstur alkóhólismans. Í mörgum öðrum tilfellum leiðir það til þess sem virðist vera bati, sem síðan endist ekki, en fyrr eða síðar leiðir til afturhvarfs til drykkju.
Það sem var markmið hins upphaflega AA--og það sem stofnendurnir miðuðu prógramminu að--var ekki bara edrúmennska. Það hefði verið hin skynsamlega leið, leið visku heimsins, raunsæis-markmiðs fórnin. Nei, stofnendur AA voru menn sem hrifust áfram af innblæstri. Þeir komu að vandamálinu með hið óvanalega skyn manna sem eru undir handleiðslu.
Leið skynseminnar hafði þegar verið marg reynd og brugðist jafn oft. Ef þú bindur takmark drykkjumannsins bara við það að vera ódrukkinn--"Hversvegna ertu ekki bara góður drengur, notar viljakraft þinn og hættir að drekka?"--virkaði ekki. Aumingja frambjóðandinn til betrunarinnar var farin að drekka aftur áður en varði. Sú uppgötvun sem hrinti AA af stað í byrjun var það að ef skjóta ætti alkóhólistanum einhvernvegin inní ástand langt framar neyslustöðvuninni einni samann--ef hann ætti að ná raunverulegri andlegri framfararbreytingu--algjörlega nýjum viðhorfum og tengslum við Guð, þá myndi varanleg neyslustöðvun af sjálfsdáðum birtast sem blessunarríkur lífgefandi viðbótar ávöxtur. Þannig hafði það gerst með Bill. Þannig hafði það gerst með Dr. Bob. Þannig hafði það gerst með flesta hinna fyrstu hundrað meðlimi. Þannig töldu höfundar "The Big Book" að það yrði að gerast með alla.
Upphaflega var Tólfta Sporið skrifað svona: " Eftir að hafa öðlast andlega reynslu sem afleiðingu þessara spora, reyndum við að flytja öðrum alkóhólistum þennan boðskap og fylgja þessum meginreglum í lífi okkar og starfi." Hinar tvær lykil setningar voru "andleg reynsla" og "sem afleiðing þessara Spora". Álitið var að: engin andleg reynsla--þýddi engin bati. Það var einnig álitið ekki væri um að ræða fjölda af mismunandi niðurstöðum við að vinna Sporin; það væri aðeins ein niðurstaða--"niðurstaðan"--og hún var andleg reynsla. Fyrir hina fyrstu félaga, þýddi andleg reynsla það að Guð hefði gripið inní líf þeirra--beint og áþreifanlega--og snúið því við.
Einhvern tímann milli 1939, þegar “Plain Dealer” greinin var birt, og 1941, þegar Alexander greininn birtist í “Post”, meiriháttar heimspekilegar afstöðubreytingar áttu sér stað í samtökunum. Á þeim tíma sem þær áttu sér stað varð engin í AA mikið var við að þetta væri að eiga sér stað, og fram til þessa dags hefur sú þróun sem þarna hófst verið nánast algjörlega óstaðfest vítt og breitt í samtökunum. Það sem breyttist var hvar áherslurnar voru; vort þær voru á bata reglurnar annarsvegar, eða bata samkenndina innann AA, hinsvegar.
Fram til 1939, var AA lítill hópur óþekktra samtaka með árangur--þó hann væri stórkostlegur--sem náði einungis til lítils hóps tilfella, sem enn höfðu ekki þreytt próf tímans. Endurhæfingar alkóhólistar í hinni ungu hreyfingu treystu hvor öðrum og unnu náið með hvor öðrum. Hér voru það samt grundvallarreglurnar sem framkölluðu hinar afgerandi breytingar á lífi þeirra. Hreyfingin sem slík var ekki nógu stór og nægilega vel grunduð til þess að hún gæti dugað sem einhliða stuðningur án einlægrar vinnu við Sporin.
Eftir að AA stækkaði--eftir að það öðlaðist alþjóðlega viðurkenningu fyrir árangur sinn--varð nýtt form tengsla við þau möguleg, sem áður hafði ekki verið valkostur um og sem stofnendurnir höfðu raunverulega ekki sé fyrir. Það varð mögulegt fyrir alkóhólista að koma á fundi og verða ódrukkinn án þess að ganga í gegnum raunverulega andlega umbreytingu, einungis í gegnum stælingar ferli, eða með eftirlíkingum--með því að iðka eitthvað sem ekki var meira andlegt en lögmálið; "Þegar-þú-ert-í-Róm-þá-gerðu-eins-og-Róverjar-gera."
Hér er lýsing á því hvernig AA-með-stælingu virkar. Nýliðinn var að gerast meðlimur í stórum árangursríkum félagskap, svipuðum og Lions, Rotary eða Kiwanis Klúbbnum. Einn af siðunum í þessum ákveðna klúbb varð að meðlimirnir drukku ekki; þannig að ef nýliðanum líkaði við fólkið sem hann kynntist í AA og vildi halda sambandi við það, þá hætti hann að drekka. Hann sótti AA fundi og AA fólk varð að miðju félagslífs hans og frítíma iðju og hann hélst ódrukkinn, fremur á hóp-eflinu frekar en einhverju öðru.
Hið raunverulega eðli þessa greinilega annars--og greinilega ekki andlega-bata valkosts var aldrei hreinskilningslega skoðað og viðurkennt innan samtakanna. Í staðin var gerð tilraun til að víkka skilninginn á hugtakinu "andlegur" þannig að það taldi til báða hópa endurhæfðra alkóhólista. Annarsvegar þeirra alkóhólista sem urðu edrú-í-gegnum-breytingar--þeirra sem með tilstilli Spora vinnu sinnar höfðu upplifað andlega reynslu og orðið gjörbreyttir einstaklingar, alvarlega innviklaðir við að endurnýja lífið og hugmyndir sínar. Hinsvegar þeirra alkóhólista sem urðu edrú-í-gegnum-eftirhermur--þeir sem héldu grundvallarlega áfram að vera sama tegund einstaklinga og þeir höfðu verið áður en þeir komu til AA, nema að því undanskyldu að þeir höfðu gengið í nýja hreyfingu, öðlast nýjan hóp vina og hætt að drekka í samræmi við þeirra nýja félagslega umhverfi.
Það er aðeins eitt hugtak sem breitt hefur verið í Tólf Sporunum síðan "The Big Book" var fyrst gefin út 1939. Hugtak þetta er "andleg reynsla" í Tólfta Sporinu. Félagi í AA heima grúppu minni, sem kom fyrst til samtakanna 1941, segir þannig frá þessu: “Þegar ég kom fyrst í samtökin þá var enn verið að tala um 'andlega reynslu'. Ári eða tveimur seinna byrjuðu þeir að kalla það 'andlega vakningu'.” Það var á þessum tíma sem hin opinbera útgáfa Tólf Sporanna var breytt í: "Eftir að hafa öðlast andlega vakningu sem afleiðingu þessara spora ..." Hugtakið andleg reynsla--sem hafði verið fullkomlega viðurkennt á fyrstu árunum þegar samtökin voru smærri og einvörðungu breytinga-viðmiðuð--fór að verða séð sem þröngt og fordóma tengt gagnvart þeim sem náðu ekki eins sterkum grundvallar persónuleika breytingum sem afleiðingu eftirhermu-viðmiðaðra-AA-iðkunar, sem var að þróast í að verða meiriháttar bataleið innan AA. Þetta leiddi til þess að útskýringar viðbæti var bætt við "The Big Book", en hann hljóðar svona:
“Hugtökin “andleg reynsla” og “andleg vakning” eru notuð margsinnis í bók þessari en þau sýna við nánari lestur að þær persónuleikabreytingar er þarf til að framkalla bata frá alkóhólisma, hafa birst á meðal okkar í mörgum mismunandi myndum.
“Eigi að síður er það rétt að fyrsta útgáfa bókarinnar gaf mörgum lesendum þá mynd að persónuleikabreytingar þessar, eða trúarleg reynsla, yrði að vera skyndileg og tilkomumikil í eðli sínu.
"Okkur öllum til fagnaðar er þessi niðurstaða röng.
“Í nokkrum fyrstu köflunum er skyndilegum gjörbyltandi breytingum lýst. Þó það væri ekki ætlun okkar að skapa slíka mynd, hafa margir alkóhólistar eigi að síður dregið þá ályktun að til að fá bata yrðu þeir að öðlast tafarlausa og yfirþyrmandi “Guðsvitund,” sem þegar í stað leiddi af sér umfangsmiklar breytingar á tilfinningum og viðhorfum.
“Á meðal okkar hraðvaxandi meðlimafjölda af þúsundum alkóhólista eru slíkar umbreytingar, þótt þær séu algengar, á engan hátt reglan. Mest af þessari reynslu okkar er það sem sálfræðingurinn William James kallar “numið afbrigði” þar sem hún þróast hægt yfir eitthvert tímabil. Mjög oft eru það að vinir nýliðans verða meðvitaðir um breytingarnar löngu áður en hann verður það sjálfur. Að lokum verður hann meðvitaður um að hann hefur tekið grundvallar breytingum í viðbrögðum sínum til lífsins og að breyting þessi hefði varla getað verið framkölluð af honum sjálfum einum samann. Það sem oft á sér hér stað á fáum mánuðum gæti sjaldnast verið framkallað með áralangri sjálfsögun.
"Með fáum undantekningum hafa meðlimir okkar fundið að þeir eru farnir að neyta úr áður óþekktri innri uppsprettu sem þeir þegar í stað tengja við sínar eigin hugmyndir um Mátt æðri þeim sjálfum.
“Flest okkar skoða þessa meðvitund um Mátt æðri okkur sjálfum, sem kjarna hinar andlegu reynslu okkar. Hinir trúaðri félagar kalla þetta “Guðsvitund.”
“Af mestu eindrægni viljum við segja að sérhver alkóhólisti sem hæfur er að horfast heiðarlega í augu við vandamál sín í ljósi reynslu okkar getur öðlast bata, að því tilskildu að hann loki ekki huga sínum fyrir öllum andlegum hugmyndum. Hann getur einungis verið yfirbugaður af hugarfari umburðarleysis eða fjandsamlegrar afneitunar.
“Við höfum reynt að engin þarf að eiga í erfiðleikum með andlegu hlið prógrammsins. Fúsleik, heiðarleiki og opinn hugur eru undirstaða batans, en þetta eru ómissandi þættir."
Þegar við berum saman þessa yfirlýsingu við það sem kynnir Tólf Sporin í fimmta kaflanum, vekur mismunurinn í tóninum undrun. Fimmti kaflinn glymur af hrinum drynjandi staðfestinga þess að markmið prógrammsins sé líf sem sé gefið Guði og leiðin sé án nokkurs vafa andlegs eðlis. Í hinum síðar-birtum viðbæti er að finna nánast fullt fráhvarf frá hinni upphaflegu hugumstóru og ó-sjálfsmeðvituðu fagnaðarfullu Guðs-skuldbindingu. Hin yfirlýsti tilgangur þessa viðbætis er að fullvissa fólk um að hinar andlegu breytingar sem fylgja AA batanum þurfa ekki að vera í formi skyndilegrar umturnunar. Það var nauðsynleg að taka þetta fram og það var vel gert með þessu.
Frekari athugasemd kom einnig fram--þó ekki beint, en með aðdróttunum--og fólst hún í hinu sjálfsvarnarlíka skrefi til baka, nánast í formi afsökunar beiðni á umræðu alls þess efnis sem hafði með trúarlega reynslu að gera. Var athugasemdin því þessi: höfundar og útgefendur af "The Big Book", óopinberir talsmenn fyrir samtökin, eru að bregðast við breytingunum á AA bata þróuninni með því að lækka markmið hins andlega þröskulds samtakanna, gjörð sem ekki hefði verið hugsanlegt að menn hefðu dirfst að gera á fyrstu árum samtakanna en gátu nú--jafnvel fannst að þeim bæri skylda til--framkvæmt þar sem samtökin voru orðin stór og höfðu öðlast orðstýr sem virðingar verð og skynseimis sanngjörn samtök. Staðreyndir stöðunnar í AA sem leiddi til endurorðunar Tólf Sporanna og innsetningu útskýringa viðbætisins við "The Big Book" má taka saman þannig:
"Það er nú mögulegt að öðlast bata með einni af tveimur mögulegum leiðum í AA. Möguleiki eitt er hin upphaflega, andlegu reynslu leið, sem næst með því að vinna öll Sporin. Möguleiki tvö er leið Sporavinnu að hluta til, með aðal áherslu á traust í hinum félagslega samkennda-þætti samtaka-tengda lífs AA. Seinni aðferðin framkallar venjulega ekki andlega reynslu eins og fulls prófgrams sterk-AA-þátttaka býður uppá. Hún brýtur einnig í bág við erfðavenju okkar um að við ættum alltaf að setja málefni og markmið ofar eigin hag. Það sem hinsvegar styður þessa aðferð er að hún þarfnast minni skuldbindinga og minni vinnu; þarfnast minna í formi endurskipulagningar lífsins; og hún hefur sannað sig sem nægileg í mörgum tilfellum til að framkalla varanlegt fráhald frá drykkju." Engin slík yfirlýsing var nokkru sinnis gerð, og breytingin á hugtökum frá andlegri reynslu til andlegrar vakningar hafði þau áhrif að gera hið raunverulega eðli breytinga þeirra sem átt höfðu sér stað, óljóst og þokukennt í hugum manna.
Þetta var þó ekki mál sem hafði að gera með meðvitaða blekkingu af hálfu einhvers. Það var einungis getuleysi til að sjá skiptinguna í tvær herbúðir þegar hún hafði átti sér stað. Það hefðu í öllu falli verið auðveld mistök fyrir hvern þann sem lifði í gegnum þennan kafla í sögu AA, mjög skyljanlegt getuleysi til að sjá þróunar hneigðirnar, sambærilegar við getuleysi móðurinnar til að sjá vaxtarbreytingarnar á eigin barni. Í félagsskap sem var nánast framar öllu öðru tileinkaður viðleitni til að forðast hverskyns ágreining, var blinda á þennan klofning nánast óhjákvæmileg.
Ókosturinn við hina upphaflegu, ströngu, sterks-kaffis-nálgun við AA prógrammið var að það þarfnaðist þess að nýjir félagar tækju dýfu inní rótækt prógramm andlegra umbyltinga, stefna sem hefur aldrei í sögunni verið vinsæl meðal mikils fjölda fólks. Hefði hin upphaflega stefna verið hin eini valkostur, er vafasamt að AA hefði náð alþjóðlegum meðlimafjölda neitt í líkingu við þær ca 3.500.000 sem hann er í dag.
Hin veika-kaffi-nálgun hafði hinsvegar enn alvarlegri innbyggða galla. Hin tiltölulega yfirborðskennda lífsstíls breyting sem hún framkallar er nægileg til að þurrka suma alkóhólista. Hún dugir hinsvegar ekki--hefur ekki virkni--einfaldlega virkar ekki--fyrir mjög stórann hóp annarra alkóhólista. Þetta verður sérstaklega áberandi þegar kemur að hinum svokölluðu "hard" tilfellum--alkóhólistum sem hafa orðið illilega fyrir barðinu á sjúkdómnum líkamlega og andlega áður en þeir komu á sinn fyrsta AA fund; fólk sem reynt hefur verstu tegund alkóhólisma í gegnum meðfylgjandi lyfja misnotkun, hverskyns óeðli, glæpsamlegar og sjúklegar andlegar hneigðir, eða geðveiki síkósuköst; og eru "sí-endurkomu alka," sem hafa þróað með sér ferli þar sem þeir hanga í AA ódrukknir einhvern tíma, en hverfa endurtekið aftur til drykkju. (Venjulega eru þessir sí-endurkomu alkóhólistar með síkópatískar hneigðir sem koma aftur og aftur til AA, en eru ekki viljugir eða hæfir til að vinna með grundvallar lögmál, eins og lögmál strangs heiðarleika.) Hin veika-AA-iðkun snertir ekki megnið af þessum einstaklingum. Þeir geta ekki haldið sér ódrukknum með þessari aðferð.
Eigi að síður kemur fyrir að þessi erfiðu tilfelli rata inn í umhverfi þar sem er sterk AA-iðkun, og ekkert annað en sterk-AA-iðkun er til staðar, þá gerist það að margir þeirra verða hæfir um að ná varanlegri edrúmennsku. Stofnanir eins og "The East Ridge Community" í New York fylki hefur unnið með hundruðum slíkra erfiðra tilfella í gegnum undanfarin ár. Sterk-AA-þátttaka er fastur liður á matseðill East Ridge, sem hefur sýnt framá yfir sjötíu prósent bata árangur með þessa svo-kölluðu AA-vonleysingja. Engin árangur, breytist í árangur, með stærsta hluta þeirra þegar skipt er úr veikri-AA-iðkun í sterka-AA-iðkun.
Það er önnur ennþá lævísari ógnun byggð inní veika-AA-iðkun. Í mörgum tilfellum bregst sá "bati" sá sem framkallaður er með útvatnaðri nálgun við Sporin Tólf, og heldur ekki út til lengdar. Það sem í byrjun leit út sem auðveldari og þægilegri leið við að halda ánægjulegri edrúmennsku, gaf stöðugt minnkandi nægjusemi, sem að lokum endaði í fullkominni stefnubreytingu og afturhvarf til alvarlegrar persónulegrar vanlíðunar. Loka niðurstaðan kannað verða afturhvarf til virks alkóhólisma; eða, skammt handan við markalínu algjörs samanbrots. Hún getur þá leitt af sér hnignun niður í líf ósátts fráhalds frá alkahóli sem er þjakað af hverskonar samsetningum af spennu, gremju, þunglyndi, áráttu sjúku kynlífi, og einni allsherjar tilfinningu um tilgangsleysi lífsins. Í öllu falli er þetta í loka skilgreiningunni getuleysi til að uppskera ávexti AA prógrammsins; getuleysi til að ná bata. Fyrir marga leiðri það til þess að þeir taka eigið líf.
Tvær ógnvekjandi hneigðir er að merkja í samtíma AA. Önnur er í átt til lækkandi heildar bata hlutfalls. Á fyrstu tuttugu árum samtakanna var áætlaður bata árangur þeirra sjötíu og fimm prósent. Reynsla AA var að fimmtíu prósent þeirra alkóhólista sem komu til AA urðu edrú strax frá byrjun og héldust ódrukknir. Önnur tuttugu og fimm prósent áttu í einhverjum vandræðum um tíma en urðu að lokum edrú varanlega, og afgangurinn af tuttugu og fimm prósentum náði aldrei bata. Síðan kom tímabil nokkurra ára þar sem AA höfuðstöðvarnar hættu að tala um sjötíu og fimm prósent bata árangur í hinum opinberu útgáfum sínum. Árið 1968, birti "General Service Organization" (GSO) AA könnun sem sýndi sextíu og sjö prósent heildar bata niðurstöður. Samantekt alls þessa virðist vera að því stærra og eldra sem AA verður, hafa áhrif þess minnkað úr um þrem af fjórum niður í um tvo af þrem 1976. Tveir af þrem var niðurstaðan 1976--nýjustu niðurstöður frá 1997 sína að hlutföllin hafa LÆKKAÐ mjög MIKIÐ og fyrir 1997 voru þau talinn 1 af 15, sem svarar til um 6.66% og er nú almennt talað um sem 5% til 10%.
Hin seinni óheillavænlega þróun í samtökunum er ekki staðfest með tölum, en hún er nægilega augljós fyrir hvern sem gefur gaum að AA sviðinu. Eftir því sem samtökin eldast í tíma, vex hluti þeirra af "óld-tæmerum", alkóhólistum sem hafa verið edrú í tíu ár eða lengur. Með þessu stækkar spurningin um úthald AA-samtakanna all verulega. Það er síður gleðileg staðreynd að vaxandi fjöldi þessara "óld-tæmera" finst gleðin vera að hverfa úr edrúmennsku þeirra og margir þeirra fara að leita í örvæntingu eftir leiðum til að ná aftur hinum gömlu töfrum ódrukkins lífs, sem oft endar í blindgötum eins og sturluðum trúarhópum, hættulegum sálfræði tísku-fyrirbrigðum, eða kemískum valkostum eins og sýru, stuðreykingum, róandi lyfjum og hverskonar hugbreytandi gleðipillu upplyftingu. Alltof margir enda síðan uppi í því að fara að drekka aftur eða, því sem er næstum jafn sorglegt, sökkva í örvæntingu og þunglyndi, fjandsamlega framkomu, undarleg hegðunarmunstur af einni tegund eða annarri, eða bara einfaldlega í niðurbrjótandi leiðindi.
Allt er þetta ónauðsynlegt. Hin hægt minkandi bataárangur samtakanna og "óld-tæmer blúsarnir" þarfnast ekki flókinna og hugmyndaríkra lausna. Svarið liggur í afturhvarfi til hins upphaflega sterku-AA-iðkunar. Það kemur í ljós að mennirnir sem skrifuðu "The Big Book" höfðu rétt fyrir sér eftir allt samann. Það er engin auðveldari og þægilegri leið. Sú aukna vinna og einurð sem til þarf við fulla prógramms viðleitni skilar gífurlegum hagnaði. Hún gerir edrúmennskuna skemmtilega vegna þess að hún gerir edrúmennskuna ekki að tilganginum í sjálfum sér. Það að lifa án áfengis er eitt og sér ófullnægjandi tilgangur í lífinu. Jafnvel máttur hnattdreifðs félagskapar fólks sem drekkur ekki, getur eitt og sér einungis verið sem tímabundin og takmarkaður hemill á drykkjuskapinn fyrir flesta alkóhólista.
Meirihluti þeirra sem verða ánetjaðir er fólk með mistískar hneigðir og hungur í óþrjótandi sælukennd. Við leituðum þess í flöskum sem einungis er að finna í andlegri reynslu. AA virkaði fyrst og fremst vegna þess að Tólf Spora kerfi þess hefur virkni sem leiðsögn til andlegrar reynslu. Vöxtur hreyfingarinnar gerði mögulega í fyrsta skiptið nokkurskonar sníkjudýra samvinnu þar sem hálfkærings-iðkendur og ekki-iðkendur hinna andlegu lögmála gátu nærst á styrk þeirra er farið höfðu í gegnum raunverulega andlega reynslu. Þegar þrír fjórðu aldarinnar var liðinn höfðu sníkjudýrin þegar mjólkað móður dýrin af verulegum hluta lífskrafts þeirra.
Það er fremur seint tekið til við að kalla eftir því að snúið sé aftur til hinna upphaflegu leiðar, leiðina í einlægri iðkun alls prógrammsins. Eigi að síður er mikið líf enn í samtökunum og meiriháttar endurvakning er möguleg ef nægilega mörg okkar sjá hættuna í stöðu okkar tímanlega, persónulega og sem samtök. Hvað gera þarf er nægilega ljóst. Það er skráð skýrt í fyrstu sjö kafla AA-bókarinnar. Þar sem þetta allt kemur saman--sérstaklega fyrir okkur gamlingjanna--er í viljanum til að halda áfram að iðka öll grundvallar atriðin í öllum okkar málum í dag, fremur en að setjast á sigursveig okkar, og taka stefnuna í að vinna í prógramminu eins og við gerðum á þeim dögum fyrir löngu síðan, þegar við vorum á fyrstu vikum og mánuðum í edrúmennsku bernsku okkar.
Við meigum ekki bregðast í því að horfast hreinskilningslega í augu við þörfina til að breytast, þörfina til að endur tileinka okkur profgrammið. Kæruleysi og sjálfsánægja með staðfestan árangur okkar er okkar versti óvinur. Ef við--sem félagskapur endurhæfðra ánetjunarsjúklinga--erum ekki viljug til að leiðrétta núverandi stefnu okkar, þá er útlitið nægilega augljóst. Við komum til með að gefa upp á bátinn, á styttri tíma en öld, það sem hin Kristna kirkja hefur nú eitt tveimur öldum í að sýna mannkyninu: það að jafnvel hinar bestu stofnanir mannsins hafa tilhneigingu til að afturfarar með tímanum; og að stærð andlegra samfélaga er alltof oft fengin með því að gefa eftir hvað við kemur grundvallar lögmálunum og með vaxandi aðskilnað frá hinum upphaflegu markmiðum og venjum.
Ég held lífi mínu fyrir tilvist AA. Ég vona að við höfum framsýnina og auðmýktina til að breytast. Ég veit að við getum það ef viljinn er fyrir hendi. Eitt er hinsvegar víst: Sporin Tólf eru jafn fyllt andargift og hvetjandi, jafn hagnýt, jafn óumbreytanleg og jafn framkvæmanleg nú eins og þau voru þegar þau voru fyrst sett á blað fyrir sextíu og þremur árum. (2002)


Powered by Plone CMS, the Open Source Content Management System

This site conforms to the following standards:

Personal tools